![]()
A22+ Sumarhúsakerfið er eitt vinsælasta kerfið sem Boðtækni ehf. hefur í boði. Um er að ræða sérhannað hágæða sænskt GSM vöktunarkerfi fyrir sumarhús eða önnur híbýli til að fyrirbyggja þjófnað og skemmdir af völdum tjóna.
Virkni. Kerfið er þráðlaust öryggis- og hitastjórnunarkerfi sem byggir á SMS samskiptum. Kerfið getur sent skilaboð í allt að 8 símanúmer við atburð.
Rafmagn af/á, kerfið sendir boð um rafmagnsleysi ef spennufæðing þess er rofin í 30 mín, eins þegar spenna kemur á að nýju. Varafl er innbyggð hleðslurafhlaða og heldur kerfinu gangandi í langvarandi rafmagnsleysi.
Reykskynjun, ef reykskynjari fer í gang sendir kerfið SMS skilaboð um að reykur sé í húsinu.
Hreyfiskynjun, ef hreyfiskynjari nemur umgang sendir kerfið SMS skilaboð um að hreyfing sé í húsinu.
Hitastjórnun, hitanemi er innbyggður í stöðinni, sendir boð þegar þess er óskað, virkar einnig sem frostvörn, ef hitastig fer niður í 5°C í 30 mín., sendir kerfið SMS boð og ræsir þráðlausan útgang til hitunar. Hægt er að stjórna hitastigi með SMS boðum og eru stillingarnar tvær, þ.e. +10 og+ 20C°.
Aðgangskerfi, Hægt er að setja kerfið á vörð og taka af verði með SMS skilaboðum eða þráðlausri fjarstýringu, Með því er hægt að hleypa einhvernum inn í húsið án þess að vera á staðnum.
A22+ Sumarhúsakerfið er góður og vandaður kostur fyrir sumarhúsaeigendur. Kerfið er einfalt í uppsetningu og notkun. Rekstrarkostnaður er lítill þar sem hann byggist aðeins og sendum SMS skilaboðum.
Sumarhúsakerfi A22+ inniheldur
- Stjórnstöð með innbyggðum GSM síma, loftneti og spennugjafa
- Rafmagn af / á
- Reykskynjari
- Hitaskynjari
- Hreyfiskynjari
- Hurðanemi
- Fjarstýring, 2. stk.
- Límmiðar í glugga i
- Íslenskar leiðbeiningar
Hægt er að bæta eftirfarandi íhlutum og skynjurum við kerfið eftir þörfum hvers og eins.
- Þráðlausum útgangi til stjórnunar (mest 8. stk.)
- Útihitanema
- Hurðanemum
- Hreyfiskynjurum
Nánari upplýsingar hjá söluráðgjafa Boðtækni ehf í síma 554 0500
Boðtækni ehf
Selhellu 13
221 Hafnarfjörður
www.bodtaekni.is
Boðtækni ehf. er rótgróið og framsækið tæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í lausnum á sviði öryggis- vöktunar- og úthringikerfa fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Boðtækni leggur mikla áherslu á góða og vandaða þjónustu, gæða vörur á samkeppnishæfu verði. Fyrirtækið hefur verið starfrækt frá upphafi árs 2002 og hefur því mikla reynslu á þessu sviði.