![]()
Til sölu glæsilegur Ford Econoline 7,3 dísel, 4x4, upphækkaður, innréttaður sem húsbíll. Þetta er árgerð 1989 og því orðinn fornbíll. Lágar tryggingar og engin bifreiðagjöld.
Þetta var upphaflega björgunarsveitarbíll á Dalvík. Hann er upphækkaður fyrir 38 tommur, en er á 35 tommu dekkjum. Hann er 7,3 dísel og sjálfskiptur, c6 skipting. Hásingar Dana 60 , 4.56 drifhlutföll. Tveir eldsneytistankar.
Að innan er hann með upphækkuðum topp og því mjög rúmgóður. Sér rúm niðri og tvær kojur fyrir krakka uppi, sem einnig má nota sem geymslupláss. Hann er vel einangraður og heldur vel hita. Bíllinn er með tengil fyrir landrafmagn, ískáp með frystihólfi, gasvari, tvær gashellur sem tengjast gaskút aftan á bílnum og vask sem tengist vatnstanki aftan á bílnum.
Bíllinn afhendist nýskoðaður, næsta skoðun árið 2016. Í fyrra voru settir nýir bremsuklossar og diskar allan hringinn. Hann er í góðu standi að flestu leiti en þarfnast smá viðhalds á næstunni. Það þarf að bæta ryð að utan fljótlega og láta kíkja á sjálfskiptinguna(ekki mjög kostnaðarsamt). Svo þarf að ditta smotterí að honum að innan, festa öryggisbelti aftur í og eitthvað álíka.
Ásett verð á svona bíl í stoppstandi er ca. 1500 þúsund. Þar sem það þarf aðeins að dytta að honum þá myndi ég láta hann á 850-900 þúsund staðgreitt. Uppl. í síma 821-2545.
Fleir myndir af honum eru hér:
https://bland.is/til-solu/farartaeki/dekk-felgur/econoline-fjallabill-4x4-disel-husbill-/2350556/